9.10.2007 | 23:28
Þannig er nú það
Ég er ekki týnd og tröllum gefin. Ég er ekki uppnumin, glötuð eða horfin. Ég er hér. Ég fer í vinnuna á hverjum degi og dunda mér við hitt og þetta skemmtilegt eins og að lesa, prjóna, fara í leikfimi og á kóræfingar. Ég reyni líka að sýna vinum og fjölskyldu ræktarsemi.
Ég er bara í óútskýranlegri bloggfýlu og þarf að taka sjálfa mig í gegn og finna út úr hlutunum.
23.9.2007 | 21:57
Íslenska eða ekki íslenska
Ég hef alltaf jafn gaman af umræðu um íslenskt mál, hvort sem rætt er um málfræði, mállýskur, málvenju, staðbundinn framburð, sérvisku, nafngiftir, málfar, orðatiltæki, orðaleiki, bókmenntir, nýyrðasmíð, málshætti, samanburð við önnur tungumál eða annað hvaðeina sem varðar hina ástkæru tungu sem ég nam innum nefið eins og Nóbelskáldið sagðist hafa lært Skandinavísku. Allt sem viðkemur íslenskri tungu finnst mér gaman að ræða um.
Ég er enginn snillingur í málinu, langt frá því, en það kemur ekki í veg fyrir áhuga minn á málinu. Ég er alin upp í þágufallssjúku umhverfi og varð að taka upp nýtt mál þegar ég gerðist kennari og það er meira en að segja það. En það er ekki mál dagsins.
Umræða hefur skapast að undanförnu um íslenskuna, eins og svo oft áður, en nú um það hvort hún verður að heimamáli og enskan verði allsráðandi sem vinnumál. Með innrás og útrás fyrirtækja hefur mátt búast við þessu. Forkólfar fyrirtækja eru að finna sínum fyrirtækjum farveg til þess að takast á við breytt landslag.
Mér finnst það í fínu lagi að fyrirtæki verði tvítyngd. Það er eðlileg þróun. Ég hræðist það ekki svo mjög að íslenskan verði sett út í horn og hætti að þróast því ég trúi því að í hverri kynslóð rísi upp ungir menn og konur sem haldi vörð um okkar ástkæra, ylhýra mál, eins og Jónas kallaði íslenskuna, og geri sér grein fyrir mikilvægi þess að halda íslenskunni og leyfa henni að þróast og fylgjast með því sem er að gerast.
Íslenskan verður aldrei sett út í horn og gerð að annars flokks máli á meðan við eigum ungt fólk eins og uppáhaldasonarson minn, sem sagði við mig í gær að það væri nauðsynlegt fyrir okkur að halda vörð um málið okkar því það væri það eina sem við ættum til þess að vera stolt af. Aðrar þjóðir geta státað sig af gömlum miðbæjum, glæsilegum húsum og höllum en við ættum ekkert svoleiðis.
"Við eigum bara málið okkar og gömlu bækurnar", sagði Kolbeinn, "til þess að halda okkur saman sem þjóð."
Ég veit ekki hvort var stoltara ömmuhjartað eða hjarta íslenskukennarans, nema hvort tveggja sé.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2007 | 22:49
Skattur á skatt ofan
Fyrir nokkrum árum var stofnaður sjúkrasjóður innan stéttarfélagsins míns. Það var mjög þarft verk og hefur vonandi komið sér vel fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna veikinda. Sjóðurinn tekur einnig þátt í ýmsum lækna- og sérfræðingakostnaði og hef ég nýtt mér það í sambandi við Laser augnaðgerð, krabbameinsskoðun, tannlæknakostnað og áhættumat hjá Hjartavernd.
Það er fyrst þegar endurgreiðslan kemur sem reiðin blossar upp.
Mér finnst varla rétt að tala um endurgreiðslu því það er tekinn 32,72% skattur af endurgreiðslunni. Ég veit ekki betur en að ég sé búin að borga skatt af laununum mínum og skil þess vegna ekki af hverju ég þarf að borga skatt aftur þó að aurarnir mínir fari á smá flakk þ.e. ég borga lækninum fyrir veitta þjónustu og sendi kvittun í sjóðinn minn sem sendir mér aurinn til baka en því miður ekki allan. Ríkið hirðir hluta af peningunum mínum. Þvílíkt óréttlæti. T.d. borgaði ég 12.600 krónur fyrir áhættumat hjá Hjartavernd. Sjóðurinn veitir fullan styrk en ég fæ samt einungis til baka 8.099 krónur.
Ég skil ekki hvernig það er hægt að búa til svona óréttlátar reglur.
10.9.2007 | 22:22
Matardagbók
Ég skrifaði matardagbók um daginn, í nokkra daga, því leikfimiskennarinn minn bauð upp á að fara yfir slíka bók. Ég fann það að á meðan ég hélt samviskusamlega dagbókina þá hafði það áhrif á hvað ég lét ofan í mig því ég vildi ekki að kennarinn minn sæi græðgina sem býr í mér. Ég borðaði sem sagt ekki nærri því allt sem mig langaði til þessa daga. Samt fékk ég fullt af athugasemdum hjá kennaranum rétt eins og ég væri nemandi að fá ritgerð til baka. Ég stóð mig meira segja að því að afsaka sumt rétt eins og nemendur mínir gera þegar ég gef þeim athugasemdir. Svona snýst allt við, einu sinni var leikfimiskennarinn nemandi hjá mér.
Ég þarf að taka matarræðið enn betur í gegn og ég sem hélt að ég gæti ekki betur.
Mér líður núna eins og ég megi andskotann ekkert éta!
6.9.2007 | 15:19
Lúkas í skóla
Mér finnst svo stutt síðan hann fæddist. Hann Lúkas litli Þorlákur. Yngsta barnabarnið mitt. Hann er samt að byrja í skóla í dag. Mætti í skólann sinn í skólabúning með tösku á bakinu. Hann á að fara að læra stafina og litina og eitthvað fleira. Hann mun fá heimavinnu. Það er stutt síðan hann fæddist. Hann er bara þriggja ára. Verður fjögurra ára eftir tæpa tvo mánuði. Af myndum að dæma, sem mamma hans setti út á netið í morgun, var hann ekkert spenntur fyrir því að fara af stað. En það hýrnaði yfir honum þegar hann fattaði að hann myndi hitta krakka.
Hann mun að öllum líkindum aldrei upplifa þá miklu spennu og tilhlökkun sem flestir íslenskir krakkar finna fyrir áður en þeir byrja í grunnskóla. Hann er svo ungur að hann skilur þetta varla.
Kannski er það bara allt í lagi því margir krakkar verða líka fyrir vonbrigðum þegar í grunnskólann kemur.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.9.2007 | 21:37
Seinni koma í Hjartavernd
Ég bæði hlakkaði til og kveið fyrir að fara í seinni heimsóknina í Hjartavernd. Ég hakkaði til að þeim kafla í lífi mínu lyki, þar sem ég hefði einhverjar áhyggjur af hjartanu mínu og kveið fyrir að fá fréttir af því að ég þyrfti að hafa áhyggjur áfram af þessum sama líkamshluta.
Ég hitti á svona líka þægilegan lækni. Hann vildi miklu frekar tala um sameiningu sveitarfélaga og skólamál heldur en hjartað í mér. Hann hafði áhyggjur af börnunum sínum sem þurfa núna að glíma við það að vera í íslenskum skóla og taka þátt í því að vera í blönduðum bekkjum. Þau höfðu verið í skóla í Bandaríkjunum þar sem fyrirkomulagið var með öðrum hætti.
Eftir að hafa rætt við þennan nýja lækni minn um þessi mál öll, fundum við út að við áttum það sameiginlegt að finnast Iowa city kósy borg og þangað langaði okkur bæði að koma aftur á lífsleiðinni. Hann var þar við nám um leið og Kalli minn og þekkjast þeir nokkuð. Ég segi það enn og aftur: Hann er lítill og skondinn þessi heimur.
Lækninum leist ekki betur en svo á ástandið á mér að hann ætlar að senda mig í sneiðmyndatöku til að fá úr því skorið hversu mikið kólesteról hefur safnast inn á kransæðarnar.
Nú er ég komin á einn af þessum frægu biðlistum í heilbrigðiskerfinu og þarf að bíða í nokkrar vikur að mér skilst.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2007 | 21:20
Skúrað út
"Ertu vön að setja skóna út á stétt þegar þú ryksugar og skúrar forstofuna," spurði Simmi minn þegar hann ákvað í dag að hjálpa mér við þrifin á kotinu okkar.
Hann ákvað að ryksuga en ég mátti skúra.
"Já, það auðveldar talsvert að skúra forstofuna ef ekkert er að þvælast fyrir mér," kallaði ég til baka.
Ég heyrði að hann fór eitthvað að bauka í forstofunni með útidyrnar opnar og bað mig svo um að koma og sjá hversu hallaðist á hann þegar kæmi að skóeign okkar hjóna.
Hann hafði raðað sínum skóm öðru megin á stéttina fyrir utan og skónum mínum, sem voru í forstofunni, hafði hann raðað hinum megin.
Ég yrði voða fegin ef ég gæti látið eitt skópar duga við öll dress eins og hann Simmi minn gerir en það er bara ekki þannig hjá mér.
23.8.2007 | 18:04
Rétt klædd
Það rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég var að tygja mig af stað í morgun, í áhættumat hjá Hjartavernd, þegar ég lenti fyrir 20 árum eða svo í hjartarannsókn og fór í nýju flottu samfellunni minni. Ég vissi ekki að ég yrði sett í þrekpróf á hjóli og varð að fara úr að ofan. Ég var tengd með vírum í einhverja vél og var látin hjóla í óratóma, að mér fannst. Þarna varð ég að hamast á hjólinu með brjóstin dinglandi út um allt. Þrír ungir karlmenn voru að sniglast í kringum mig. Ég hefði verið í haldara ef mig hefði grunað í hverju ég lenti.
Vegna þessarar reynslu fór ég ekki í samfellu í morgun en var þá auðvitað ekki sett á hjól í þrekpróf. Það verður bara gert ef lækni sýnist að þess þurfi eftir að ég fer í viðtalið, sem er seinni koma vegna áhættumatsins.
Það er alltaf jafn erfitt að vita hvernig maður á að vera klæddur.
22.8.2007 | 16:20
Aftur í eróbikk
"Mittistaska? Nei, það getur ekki verið, ég er ekki með neina mittistösku."
Þetta var hugsunin sem skaust upp í heilabúið mitt þar sem ég var í "eróbikkleikfimi" eftir eins og hálfs árs hlé. Ég stóð í þeirri góðu trú að morgunsundið og gönguferðirnar hefðu gert eitthvert gagn og haldið mér í þokkalegu formi.
Ég man samt ekki eftir því, síðast þegar ég var í leikfimi, að mér fyndist ég slá lærunum í mittistösku þegar ég gerði hnélyftur. En sú varð raunin í gær. Það var eitthvað þarna fyrir lærunum. Tekið skal fram að ég get lyft hnjánum nokkuð hátt en nú strandar allt á einhverju þarna á maganum.
Það skyldi þó aldrei vera að maginn hafi stækkað eitthvað. Það er eins gott að mæta í leikfimi aftur.
En ég var samt mjög ánægð með að komast harmkvælalaust í gegnum tímann.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2007 | 18:30
Eftirlát amma, verri tengdamamma
Amma, I need Mavis," sagði Lúkas Þorlákur við mig í símann áðan. Ég þurfti að fá útskýringu á Mavis hjá mömmu hans. Mavis er sem sagt ein af lestunum í lestasafninu hans. Hann safnar Thomas and friends lestunum og á svo mikið af teinum, húsum, lestum og dóti sem fylgir þessu að það þekur stofugólfið heima hjá honum.
En upp úr þurru í dag, þegar hann var að leika sér að lestunum sínum, sagði hann meira við sjálfan sig: "I need Mavis, amma kaupa Mavis." Þegar hann heyrði að mamma hans var að tala við mig í símann bað hann um símtólið og tilkynnti mér þetta. Nú verð ég að athuga hvort Mavis fáist á Íslandi og senda barninu, annars verð ég að gera aðrar ráðstafanir. Lúkas verður að eignast Mavis.
Áður en við mæðgur kvöddumst heyrði ég að tengdasonur minn sagði það hátt að ég átti að heyra:"I need tölvu. Gunna kaupa tölvu." (Merkilegt, orðið tölva er notað á þessu breska heimili).
Það er ekki leiðinlegt að eiga breskan tengdason þegar maður elskar breskan húmor.
Eða á ég kannski að hlaupa út í búð og kaupa tölvu?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)