Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Pollýanna

Ég hef reynt og reynt að undanförnu að hætta að hlusta og horfa á fréttir en það er eins og að einmitt nú megi ég ekki tapa einum einasta fréttatíma. Ég er svo hrædd um að eitthvað gerist og ég missi af því. Eins og að það sé nú einhver hætta á því. Í alvöru, ástandið er á heilanum á mér.

Ég verð að fara að taka mig taki og komast upp úr þessari svörtu holu sem ég er í.

Það breytist hvort eð er ekkert. Maður verður bara að taka ástandinu eins og það er og reyna að finna eitthvað bjart út úr þessu.

Það hefur ekki verið að ástæðulausu sem þeir endurútgáfu Pollýönnu fyrir jólin.


Sama rassgatið

Já, þeim datt það helst í hug að ræða um það, þegar þeir komu úr jólafríi,  hvar við ættum að kaupa brennivínið okkar.  Eins og okkur sé ekki sama þó við förum í nokkurn tíma enn í Vínbúðina. Nei, við erum með áhyggjur af einhverju allt öðru en þingmennirnir okkar og ríkisstjórnin. Ég veit ekki hvenær mál eru sett á dagskrá hjá þinginu. Þetta var kannski löngu komið á dagskrá en mér er sama um það.

Mér finnst það í rauninni móðgandi að þeir skuli virkilega hafa ætlað að tala um hvar vínið skuli selt framvegis en ekki um vandamálin sem steðja að þjóðinni. Þeir eru að segja okkur með þessu að þeim sé skítsama um okkur.

Ég vil að þeir, sem vinna í hinu háa Alþingi, hlusti á okkur fólkið sem kaus þá til þess að hugsa um okkar hag.

Ég vil ekki sjá nein stólaskipti núna. Það er sama rassgatið undir þeim öllum. Ég vil nýtt fólk þarna inn.

Tillaga Baggalúts er stórfín. En hér getur hana að líta. Ég stal tillögunni af heimasíðunni þeirra.

Eftir nokkra yfirlegu hef ég sett saman lista yfir óskaríkisstjórn mína. Legg ég til að hún taki til starfa síðdegis í dag:

Forsætisráðherra: Laddi
Utanríkisráðherra: Hófí
Menntamálaráðherra: Bó
Umhverfisráðherra: Björk
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: Mugison
Viðskiptaráðherra: Starfsfólk Bæjarins beztu
Iðnaðarráðherra: Sigur Rós
Ráðherra norrænna samstarfsmála: Geir Ólafsson
Heilbrigðisráðherra: Íþróttaálfurinn
Dómsmálaráðherra: Gaz-man
Félags- og tryggingamálaráðherra: Megas
Samgönguráðherra: Haraldur Örn Ólafsson
Fjármálaráðherra: Halli

Ef þetta gengur ekki upp sting ég upp á að ráðinn verði forstjóri sem stjórnar Íslandi eins og fyrirtæki. Það eru margir góðir til.

Forstjóri Íslands.

  

Kreppuvald

Þvílíkt ógnarvald sem helvítis kreppan hefur á mér.

Vald kreppunnar

Undir kvíðaboga kreppunnar

kikna ég

Andspænis vegg völundarhússins

vikna ég

Með framtíðina óráðna í fanginu

fikra ég mig áfram

hikandi

skjálfandi

undir kvíðaboga kreppunnar


Hvert liggur okkar leið

Mér finnst einhvern veginn eins og að setning eins og: "Við verðum að sjá hvernig hlutirnir þróast" eigi ekki við í dag.

En þetta sagði stelpan sem ég hef trúað á í langan tíma í sjónvarpsviðtali í kvöld.

Hvert á maður að snúa sér?

Hver ætlar að gera eitthvað í okkar málum?

Það liggur við að maður öskri: HHHHJJJJJÁÁÁÁLLPP og voni að einhver með viti komi og reddi þessu.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband