Hrós dagsins

Það er alltaf jafn gaman að fá hrós. Við Simmi minn fengum bæði hrós í gær.

Við Nanna droppuðum aðeins við hjá Svövu Rán í gær, þegar við fórum tvær einar í bæinn og nýi lærlingurinn í búðinni hennar hélt að við værum systur. Ég tek þessu þannig að ég sé svona ungleg en ekki að dótla mín sé svona ellileg.

Málkunnugur nágranni Svövu Ránar, hress og skemmtilegur gæi, sá þau feðgin Svövu Rán og pabba hennar, saman að kaupa pizzur. Þessi gæi kemur stundum við í búðinni hennar bara til að spjalla. Hann kom í gær og spurði hana hver hefði verið henni með kvöldið áður. Þegar hún svaraði pabbi minn, sagði gæinn að hann væri "delicious and good enough to eat."

Það kemur kannski málinu ekkert við að maðurinn er samkynhneigður en ég ætla að minna Simma minn á þetta næst þegar hann segist vera svo "djöfulli ljótur."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha já Simmi hlýtur að vera hæst- ánægður með þetta hrós . Hafið það gott í útlandinu! Bið að heilsa öllum

Hulda frænka (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband