Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
5.2.2007 | 20:24
Ja hérna hér
4.2.2007 | 17:29
Stórt hjarta
Það var hressilegt viðtal við Bryndísi Schram á Rás 2 eftir hádegið. Hun fór mikinn um ýmiss málefni. Hún hefur sjálfsagt verið boðuð í viðtal vegna mótmælanna sem hún tók þátt í í Mosfellsbæ. Hún er að vonum sár yfir því að kápan hennar vakti meiri athygli heldur en málstaðurinn sem hún barðist fyrir. Hún varð hvöss við þáttarstjórnandann þegar hún var spurð hvort hún væri umhverfissinni. "Hvað meinarðu," sagði Bryndís, erum við það ekki öll?"
Bryndís talaði um fleira heldur en væntanlega vegalagningu í Álafosskvosinni. Hún er ekki sátt við þá umfjöllun sem Jón Baldvin hefur fengið í kjölfar viðtals við Egil í Silfrinu um síðustu helgi. Hún vill meina að æskudýrkunin sé allt of mikil og það eigi ekki að hlusta á það sem gamall maður, eins og Jón Baldvin, er að segja.
Ég gat nú ekki betur séð en að það sé nægur kraftur í Jóni þrátt fyrir einhvern aldur og að hann eigi fullt erindi hvert þangað sem hugur hans ber hann.
Svo varð hún blíð í rómnum þegar hún minntist tímans þegar hún stóð við hlið Jóns í pólitíkinni og talaði um jafnaðarstefnuna. "Veistu hvað er jafnaðarmaður"? spurði hún. "Það er maður með stórt hjarta."
Ég fann að hjartað mitt stækkaði við þessi orð.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2007 | 16:37
Hvað má kaupa og hvað má ekki kaupa?
Ég heyrði í gær talað um, að á netinu færi á milli fólks áskorun um að sniðganga þær vörur sem birgjar og kaupmenn hafa nú þegar hækkað í verði. Ég hef ekki fengið þennan póst en ég hef, að fremsta megni, reynt að sniðganga þessar vörur í rúma viku. Ég gerði meira en það. Ég prentaði út af netinu listann yfir þær vörur sem hafa hækkað, sem Neytendasamtökin birtu á heimasíðu sinni og dreifði meðal samstarfsfólks míns og hvatti það til að vera með mér í því að kaupa eitthvað annað en var á þessum lista. Enginn gaf sig neitt sérstaklega fram við mig en fólk las þetta og hummaði svolítið.
Ég les listann reglulega til þess að leggja á minnið hvaða vörur ég verð að sniðganga og það gengur þokkalega. Ég er t.d. búin að skipta um kaffitegund en gleymdi mér þegar ég keypti rautt pestó.
Heimilið er enn þá Kelloggslaust og það er allt í lagi.
31.1.2007 | 23:19
Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær
Ég er farin að halda að við ætlum ekki að láta valta yfir okkur lengur. Í fréttum í dag var sagt frá tveimur mótmælum á Íslandi. Annars vegar var hópur fólks í Mosó að mótmæla lagningu vegar í Álafosskvosinni og hins vegar voru Vestmannaeyingar að mótmæla hækkun á fargjöldum með Herjólfi. Fólk lætur greinilega tuðið heima við eldhúsborð ekki nægja lengur heldur fer og gerir eitthvað í málunum.
Ég tek ofan fyrir fólki sem lætur í sér heyra ef því er misboðið.
30.1.2007 | 23:35
Frændur vorir
Ég mætti klukkutíma of seint á kóræfingu í kvöld. Ég fann að ég átti frekar erfitt með að syngja. Ég var eitthvað svo aum í hálsinum. Það var því miður ekki vegna þess að ég hafði fagnað of mikið, heldur vegna þess að ég hafði of oft þurft að segja: ah, æ, óh, andskotinn, strákar ekki klúðra þessu og eitthvað í þeim dúr með neikvæðum, vonbrigðartón í röddinni. Já, við töpuðum. Danir lágu ekki í því.
Kórinn minn var að æfa danskt lag með dönskum texta í kvöld en það er allt önnur ella.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 21:42
Þankar fyrir þorrablót
Spurningin er
hvort rakinn í fataskápnum
eða vitlaust mataræði
hafi gert það að verkun
að æðislegi flotti gellukjóllinn
passar ekki lengur.
Vinir og fjölskylda | Breytt 1.2.2007 kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2007 | 21:31
Ísfólkið á sólarströnd
Það var skemmtilegur þáttur um Margit Sandemo í sjónvarpinu í kvöld. Hún er ótrúlega afkastamikill rithöfundur. Ég man ekki eftir að hafa lesið neitt eftir hana nema Ísfólkið. Eftir að ég keypti fyrstu bókina á sínum tíma var ekki aftur snúið. Ísfólkið heillaði svo sannarlega. Það var erfitt að bíða eftir næstu bók svo heltekin var ég af sögunni.
Ég athugaði fyrir nokkrum árum hvenær bækurnar fóru að koma út á íslensku og ef ég man rétt var það 1982. Þá var Svava Rán 8 ára gömull og drakk sögurnar í sig. Las hverja bók mörgum sinnum. Á þeim tíma sá ég ekkert athugvert við það að krakkinn læsi bækurnar en ég skildi ekki síðar hvernig mér datt í hug að leyfa henni að lesa þetta svona ungri. Ég man samt að ég var viss um að við lestur bókanna lærði hún heilmikið í sögu. Það kom reyndar á daginn þegar hún fór að kenna í grunnskóla. Þá hjálpaði henni að hafa lesið Ísfólkið.
1987 fórum við gamli minn í þriggja vikna sólarlandaferð. Þá hafði ég tekið mér pásu í lestri Ísfólksins. Ég varð eitthvað leið á yfirskilvitlegum atburðum og fannst komið nóg. Ég keypti samt alltaf bækurnar því Svava Rán varð að fá Ísfólksskammtinn sinn. Það fór því svo að á þessa sólarströnd var í farteski okkar gamla nokkrar uppsafnaðar ólesnar bækur.
Einn daginn kom fararstjórinn í heimsókn til okkar. Við vorum langt frá hinum Íslendingunum og vildi Þórunn fararstjóri athuga hvernig við hefðum það. Með henni var eignmaður hennar, Stefán þáverandi Þjóðleikhússtjóri. Við vorum að koma af ströndinni með nokkrar Ísfólksbækur í gegnsærri strandtösku úr plasti. Þegar hjónun nálguðust okkur tók ég eftir að gamli minn fer að toga handklæði til og frá í töskunni svo lítið bar á og draga það yfir bækurnar.
Hann skammaðist sín svo fyrir lesefnið sem við vorum með að hann ætlaði að fela það fyrir sjálfum Þjóðleikhússtjóra.
Ég held að í dag skammist sín enginn fyrir að viðurkenna það að hafa gaman af sögunni um Ísfólkið.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2007 | 19:06
Amma á Velli
Í Dagskránni ,sem kom út á fimmtudaginn, var lítil grein um systkinin frá Syðra Velli í Flóa. Þar kemur fram að um áramótin hafi þau sameiginlega náð því að vera 1080 ára gömul og fimm mánuðum betur. Blaðamaðurinn vill gjarnan fá að vita af því ef nokkur veit af eldri systkinahópi.
Ég hef alltaf verið stolt af því hvað pabbi minn kemur úr stórum systkinahópi og segi frá hvenær sem ég get að amma mín hafi eignast 16 börn á tuttugu árum. Aðeins einn drengur dó í barnæsku. Öll hin komust til fullorðins ára. Tveir bræður eru látnir, þeir Gísli og Ólafur. Ég hef alltaf gaman að því að heyra sögur frá Velli, frá þeim tíma er flest börnin voru heima. Einhvern tíma heyrði ég að gestkomandi maður hafi fundist það eftirtektarvert hversu mörg börn voru á bænum en enginn hávaði og læti þrátt fyrir að þau voru að leika sér í kringum fullorðna fólkið. Þau skutust til og frá án nokkurs hávaða. Þannig eru þau enn, það er ekki hávaði í kringum hann pabba minn eða systkini hans. Ég held að það sé hægt að lýsa systkinunum sameiginlega þannig að þau eru afskaplega vel gerð, dagsfarsprúð, hæglát og hógvær, alvarleg en mjög stutt í skemmtilega kímni. Flest ef ekki öll gædd listrænum hæfileikum.
Frægt er innan fjölskyldunnar þegar amma ætlaði að biðja Soffíu um eitthvert viðvik en hitti ekki á Sofffíunafnið fyrr en í þriðju tilaun. Hún kallað:" Óla, Finna, Fía." Það er enn grínast með þetta, alla vega í pabba ættlegg, þegar einhver man ekki nöfn eða mismælir sig.
Það var alltaf ævintýri að fara í heimsókn til ömmu og afa á Velli. Þarna var svo mikið af dýrum til að skoða og amma bakaði heimsins bestu ástarpunga. Ég man samt hvað við krakkarnir vorum hræddir við álftina sem bjó um tíma hjá þeim því hún var svo grimm. Þessi álft varð fréttaefni í Mogganum þegar hún dó. Hún flaug á rafmagnsvír sem varð henni að aldurtila.
Amma sagði skemmtilega frá og ég, sem krakki, fékk aldrei nóg af því að hlusta á hana fara með ljóðabálkinn En hvað það var skrýtið.
Amma mín, Margrét Steinsdóttir, var fædd 17. maí 1890. Hún giftist árið 1914 honum afa sem hét Ólafur Sveinn Sveinsson. Hann var fæddur 15. janúar 1889. Amma kemur úr fimm barna systkinahópi en afi var einbirni sem var sjaldgæft á þessum tíma. Sama ár og þau giftust fæddist Sigursteinn og síðan komu börnin hvert af öðru. Guðrún, Sveinbjörn, Ólafur, Ingvar, Gísli, Ólöf, Guðfinna, Krisján, Soffía, Margrét, Sigurður, (pabbi) Gísli, Aðalheiður, Jón og Ágúst Helgi.
Myndin sem er hér að neðan er uppáhaldsmyndin mín af ömmu. Hún hefur eignast 11 börn og eru þau öll með henni á myndinni. Hún heldur á Möggu sem fæddist 1925 og næstur í röðinni er pabbi en hann fæddist ekki fyrr en 1928. Amma fékk þarna þriggja ára barnseignarfrí sem var lengsta hléið hennar í barnseignum á tuttugu ára tímabili.
Amma og afi eiga dágóðan hóp afkomenda. Ég hef bara ekki nýjustu tölur núna svo ég læt vera að giska á hve hópurinn er orðinn stór.
Vinir og fjölskylda | Breytt 30.1.2007 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2007 | 19:10
Að léttast eða ekki
Þegar ég hef verið í megrun
í hálfan dag
líður mér svo rosalega vel
að ég fell
um kvöldmatarleytið
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2007 | 16:09
Mögnuð birta
Þegar ég vaknaði í morgun var rafmagnslaust hjá mér en þó ekki alveg. Það týrði á perunum en það var það lítil birta að ég gat t.d. ekki speglað mig. Ég sá að það var ljós í húsunum í kring og hélt þess vegna að eitthvað hræðilegt væri að í mínu húsi. Ég varð frekar smeyk og vissi ekki hvað ég ætti að gera. Það var allt of snemmt að hringja í pabba og gamli minn farinn á sjóinn. Ég reyndi samt að ná sambandi við hann en hann svaraði ekki enda hvað hefði hann svo sem gert. Ég vafraði um í þessari óhuggulegu birtu og þorði ekki að snerta neitt því ég er svo hrædd við rafmagn. Tók samt tölvuna úr sambandi en það var það eina sem ég hugsaði um að ekki mætti bila. Ég þakkaði guði fyrir að sundlaugartaskan beið tilbúin og dreif mig út í laug því að ég gat ekki klárað morgunverkin á mér heima.
Á meðan ég synti gat ég ekki hætt að hugsa um hvernig mannskepnan komst af fyrir tíma rafmagns.
Þetta var sem betur fer bara eitthvert ómerkilegt rafmagnsleysi í hluta bæjarins.