6.2.2007 | 21:54
Að finna sig í pólitík
Í sjálfstæðisbláu ljósi
-er sparkað í mig
Í framsóknargrænni bitru
-er ég svikinn
Í vinstrigrænnafjólubláum loga
-finn ég kulda og hörku
Í frjálslyndrableiku skini
-fæ ég hroll
Í samfylkingarrauðum bjarma
-finn ég taktinn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Jessssss
Sigþrúður Harðardóttir, 6.2.2007 kl. 22:18
Þú ert skáldmælt, en gættu að þér, það var víða gengið í takt á síðustu öld og ekki alltaf til farsældar,flokkshollusta er varasöm. Kv
Baldur Kristjánsson, 7.2.2007 kl. 15:54
Ad ganga i takt eda ekki skiftir engu máli.
Adalatridid er ad ganga i retta átt.
Kv.
Bardur
Bardur Einarsson (IP-tala skráð) 7.2.2007 kl. 21:12
Baldur minn, ég er opin fyrir öllu en þetta er takturinn minn í dag!
Guðrún S Sigurðardóttir, 7.2.2007 kl. 21:15
Hæ, Bárður, við höfum verið að skrifa á sömu mínútum næstum því. Takk fyrir ábendinguna.
Guðrún S Sigurðardóttir, 7.2.2007 kl. 21:17
Þú ert skáld Gunna mín. Mér finnst sr. Baldur tala af skynsemi hvað varðar flokkshollustuna. Hvaða kuldahrollur er þetta í þér í grænfjólubláumloga, mín kæra?
Sigríður Guðnadóttir, 7.2.2007 kl. 22:09
Æ, það er einhver karlrembukuldi.......
Guðrún S Sigurðardóttir, 7.2.2007 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.