4.2.2009 | 16:19
Sorg og gleði
Ég ætla að skjótast á Selfoss á eftir og hitta nokkra skólafélaga frá Selfossi. Það er kominn tími á að hittast og það þarf að undirbúa það. Ég renndi yfir nafnalistann sem ég hef í mínum fórum og varð alveg dolfallin þegar ég uppgötvaði að þrjú af bekkjarsystkinum mínum hafa kvatt þennan heim frá því við hittumst síðast fyrir aðeins 5 árum.
Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Blessuð sé minning þeirra.
Á myndinni eru þeir saman komnir sem hittust fyrir tæpum 5 árum. Við stöndum á pallinum hans Hannesar í Hafinu Bláa með Ölfusárósa í baksýn.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.