24.8.2007 | 21:20
Skúrað út
"Ertu vön að setja skóna út á stétt þegar þú ryksugar og skúrar forstofuna," spurði Simmi minn þegar hann ákvað í dag að hjálpa mér við þrifin á kotinu okkar.
Hann ákvað að ryksuga en ég mátti skúra.
"Já, það auðveldar talsvert að skúra forstofuna ef ekkert er að þvælast fyrir mér," kallaði ég til baka.
Ég heyrði að hann fór eitthvað að bauka í forstofunni með útidyrnar opnar og bað mig svo um að koma og sjá hversu hallaðist á hann þegar kæmi að skóeign okkar hjóna.
Hann hafði raðað sínum skóm öðru megin á stéttina fyrir utan og skónum mínum, sem voru í forstofunni, hafði hann raðað hinum megin.
Ég yrði voða fegin ef ég gæti látið eitt skópar duga við öll dress eins og hann Simmi minn gerir en það er bara ekki þannig hjá mér.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hæ Gunna min
Skyringin er, ad ef madur á gódar kúrekastígvélar,
thá er thad meira en nóg.
Bardur (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 11:02
Þetta er nú bara dásamlegt.....
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 25.8.2007 kl. 18:09
Ég er yfirburðasigurvegar í skóeign á mínu heimili ..... Enrique skilur bara ekki í þessari skóást en þannig er það bara. Konur þurfa að geta verið smart þegar þær stíga út fyrir hússins dyr!
Helgarknús til þín....
www.zordis.com, 1.9.2007 kl. 12:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.