24.1.2007 | 18:14
Skattur fyrir nef
Þegar Ríkisútvarpið verður orðið að OHF mun ég greiða 14.580 krónur á ári í nefskatt til útvarpsins og gamli minn mun líka greiða 14.580 krónur . Þó að við höfum verið gift í 35 ár og eigum orðið ansi margt sameiginlegt, þá höfum við enn tvö nef. En ef við, gamli minn, hefðum fæðst með silfurskeið í munninum eða spilað öðruvðisi úr því sem við höfum aflað okkur hingað til yrði litið á okkur sem neflaust fólk og þyrftum við ekki að greiða krónu fyrir það að hlusta á útvarpið.
Er furða að maður sé fúll?
Kellogsið kláraðist í morgun og það verður ekki keyptur nýr pakki.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Fínt þetta með kellogsið. Morgunkornið er fátæktargildra fyrir neytandann en uppspretta mikils auðs furoir hluthafa í Kellegs og ef þeir byggju á Íslandi gætu þeir hlustað ókeypis á útvarp.
Baldur Kristjánsson, 26.1.2007 kl. 10:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.